Beðið um beðjunafn. – 4. umferð.

Staðan eftir þrjár umferðir er sú að Sigurður, Andrés og hr/frú D hafa ölla/allir hlotið 1 stig. Mér sýnist ekki rétt að gefa írmanni rétt fyrir ágiskunina Elisabeth Rehn í­ 2.spurningu, því­ Rehn virðist einfaldlega hafa tapað í­ fyrri umferð kosninganna og ekki komist í­ seinni umferðina – en Imelda Marcos lýsti yfir stuðningi við mótframbjóðanda í­ miðri kosningabaráttu eins og um var spurt.

Svarið við 3. spurningu var Ólöf „eskimói“ Sölvadóttir. Eru allir lesendur þessarar sí­ðu hvattir til að lesa frábæra ævisögu hennar sem kom út fyrir nokkrum misserum.

Ví­kur þá sögunni að fjórðu spurningu:

Konan sem um er spurt ritaði þegar um miðjan ní­unda áratuginn greinar í­ blöð, s.s. DV og Þjóðlí­f, þar sem hún varaði við yfirvofandi klámvæðingu samfélagsins. Hún tók undir með Germaine Greer sem taldi kynlí­fsbyltinguna gera allar konur að hórum í­ nafni frelsisins – og varpaði fram þeirri spurningu hvort tilkoma getnaðarvarnarpillunnar hafi ekki verið viðbrögð karlaveldisins við róttækum kvenfrelsishugmyndum í­ byrjun sjöunda áratugarins?

Konan sem um er spurt fékk að upplifa það í­ stjórnmálastarfi sí­nu að konur sætu ekki við sama borð og karlar – í­ bókstaflegri merkingu þeirra orða.

Beðið er um beðjunafn.