Geraldine Ferraro var svarið við fimmtu spurningu. Hún var varaforsetaefni Demókrata, en peningamál mannsins hennar ollu vandræðum. Hún stofnaði rannsóknardeild innan lögreglunnar í New York sem fjallað er um í sjónvarpsþáttunum Law & Order – Special Victims Unit.
Â
Staðan eftir fimm umferðir er sú að Sigurður Magnússon, Andrés Ingi, Hr. D og þær Ingibjörg Haraldsdóttir og Stefánsdóttir hafa eitt stig hvert.
Â
Víkur þá sögunni að sjöttu spurningu:
Â
Konan sem um er spurt fæddist í júlímánuði. Móðir hennar talar fjölda tungumála, en faðirinn talar aðeins tvö – annað þeirra er esperantó. Pabbinn hefur ritað bækur um uppeldisfræði og má jafnvel líta svo á að konan sem um er spurt sé afurð einnar stórrar uppeldisfræðitilraunar.
Â
Beðið er um beðjunafn.