Viðskiptabankinn minn skipti víst um nafn í nótt. Hann heitir núna Kaupþing banki og farið verður í tryllingslega auglýsingaherferð til að berja nýja nafnið inn í hausinn á viðskiptavinum og allri alþýðu manna.
Ekki byrjar þetta þó vel hjá bankanum. Á það minnsta hefur alveg gleymst að láta stjórnendur heimasíðu bankans vita af þessum breytingum – þar heitir bankinn ennþá KB. Hefði maður ekki haldið að fyrsta atriðið á gátlistanum ætti að vera: muna að breyta heimasíðunni!