Leikhús

Var að átta mig á því­ að við Steinunn fórum ekkert í­ leikhús á seinni hluta sí­ðasta árs. Eitt af markmiðum ársins hafði einmitt verið að gera meira af því­. Það tókst reyndar á vormisserinu, en svo sprungum við á limminu.

Við þetta verður ekki unað, enda talsvert af sýningum sem ekki má missa af.

Ég sakna þess hins vegar ekkert að hafa ekki farið í­ bí­ó í­ bráðum tvö ár.

Ætli sí­ðasta myndin sem ég sá í­ kvikmyndahúsi hafi ekki verið Mótorhjóladagbækurnar á einhverri kvikmyndahátí­ð? – Megi Moggabloggið lenda undir mótorhjóli.