Janúar er vondur tími fyrir stuðningsmenn lítilla og fátækra fótboltaliða. Núna held ég þó að Luton sé að slá öll met í að auka á þunglyndi mitt.
Um daginn seldum við Carlos Edwards til Sunderland fyrir 1,4 millur. Núna stefnir allt í að Rowan Vine verði seldur til Birmingham fyrir 2 millur. – Þar með er ljóst að félagið hefur ákveðið að skora ekki fleiri mörk á þessu keppnistímabili, sem er allsérstæð ákvörðun fyrir lið sem er í nítjánda sæti.
Ef þetta gengur í gegn sé ég ekki að við eigum nokkra möguleika á að halda okkur upp – og hver er þá hagnaðurinn á sölunni?
Og hvaða stórsnillinga erum við að reyna að kaupa í staðinn? Jú: Chaleb Folan frá Chesterfield og Pawel Abbot frá Hudderfield!
Ég gæti farið að skæla.
Nær hefði verið að selja Moggabloggið – og þá í brotajárn.