Um síðustu helgi missteig ég mig illilega á hálkubunka og er aumur í ökklanum á eftir.
Ökklinn var orðinn bærilegur á þriðjudaginn, þangað til að ég álpaðist í fótbolta. Á morgun var hann svo orðinn þokkalegur aftur, þangað til að ég álpaðist aftur í fótbolta.
Núna geng ég eins og Herr Flick of the Gestapo úr Allo Allo-þáttunum. Það er svo sem ágætt, enda Herr Flicck tignarlegur maður. Allur samanburður við aðstoðarmanninn hans Herr Smallhausen er hins vegar kurteislega afþakkaður.
Herr Smallhausen var óttalegt afstyrmi – ekki ólíkur Moggablogginu.