Baldur bekkjarbróðir minn og stórvinur í Melaskólanum sankaði að sér íþróttavörum. Þegar við vorum ellefu eða tólf ára pattar eyddum við löngum tíma í Spörtu, Boltamanninum og fórum jafnvel í Útilíf í Glæsibæ til að skoða alls konar fótboltaskó, treyjur, bolta o.s.frv.
Ég eyddi sparifénu í teiknimyndasögur. Baldur hamstraði hins vegar takkaskó, tennisspaða og átti meira að segja sundknattleiksbolta! Hann átti líka kynstrin öll af hlífum. Auðvitað þurfti hann ekkert á öllum þessum hlífum að halda – enda tólf ára og laus við öll íþróttameiðsl. Mig grunar að aðdáun okkar á Þorgils Óttar Matthiesen hafi ráðið meiru um þessi kaup. Þorgils Óttar var innpakkaður í hvers kyns hlífðarbúnað.
Ég hef aldrei átt neina hlíf, en nú gæti verið tímabært að breyta því. Ökklinn heldur áfram að ergja mig.
Því spyr ég: hvar kaupi ég mér almennilega ökklahlíf – og hvað þarf að hafa í huga við slík innkaup?
# # # # # # # # # # # # #
Á morgun þurfti ég að moka út bílinn minn. Starfsmenn borgarinnar ruddu Skarphéðinsgötuna um helgina, en ýttu snjónum upp að bílunum í götunni og bjuggu til miklar torfærur. Nær væri að moka yfir Moggabloggið.