Augað

Horfði á leiðtogaumræðurnar í­ Kastljósinu í­ kvöld. Get ekki sagt að þær hafi verið minnisstæðar – nema þá helst fyrir eitt atriði: augað á Guðjóni Arnari.

Nú veit ég að það er hvorki kurteislegt að góna á svona lýti eða málefnalegt að velta sér uppúr því­ – en ætli þorri áhorfenda hafi ekki setið heima í­ stofu og hugsað: „Hvað er með þetta blóðhlaupna auga? Er maðurinn að fá hjartaáfall í­ beinni útsendingu? ít hann bara salt alla páskahátí­ðina?“

Nú les ég eitthvað um það á bloggsí­ðum að Guðjón Arnar hafi verið með sýkingu og jafnvel fárveikur í­ þættinum. Það gæti reyndar skýrt firnaslaka frammistöðu hans.

Annars hafa stjórnmálaforingjar farið misvel út úr því­ að mæta veikir eða lemstraðir í­ sjónvarpsþætti fyrir kosningar. Sighvatur Björgvinsson var t.d. ekki að græða 1995 þegar hann var hálfkrambúleraður með aðra höndina eða báðar í­ fatla – verandi fyrir hataður eftir störf sí­n sem heilbrigðisráðherrann sem setti á komugjöldin.

Daví­ð Oddsson fór hins vegar ágætlega út úr því­ 1990 í­ borgarstjórnarkosningum að koma beint af sjúkrabeði með stóra plástra í­ andliti eftir e-a veirusýkingu. íhorfendum fannst stjórnarandstaðan vera lúaleg að lúskra á veikum manninum í­ umræðuþættinum og hann fékk samúð – ekki þar fyrir að stjórnarandstaðan 1990 var svo slöpp að hún hefði aldrei haft neitt í­ borgarstjórann að gera, plástraðan eða óplástraðan.

Megi Moggabloggið bryðja salt – og það ótæpilega.