Við Steinunn brugðum okkur í bæinn í hádeginu og átum á best varðveitta leyndarmáli miðbæjarins – matstofunni í Ostabúðinni á Skólavörðustíg. Þar er hægt að fá fisk dagsins, súpu eða salat fyrir lítið fé. Éta þar allir góðir menn.
# # # # # # # # # # # # #
Hörmungar Luton ætla engan enda að taka. Nú hefur stjórnarformaðurinn sagt af sér og viðurkennt að hafa staðið í ólöglegum greiðslum í tengslum við félagaskipti leikmanna. Þetta gæti kostað klúbbinn refsingar á næsta tímabili auk þess sem líkurnar á eigendaskiptum hafa minnkað.
Ætlar EKKERT að ganga okkur í haginn á þessu ári???
# # # # # # # # # # # # #
Fékk þær fréttir í morgun að framkvæmdirnar hér við safnið muni taka lengri tíma en ætlað var. íkveðnum hlutum verksins hefur verið ýtt yfir á næsta ár. Það eru viss vonbrigði og þýðir að ég verð að haga ákveðnum hlutum öðruvísi en til stóð. En það þýðir ekki að svekkja sig á því.
# # # # # # # # # # # # #
Á kvöld er House á Skjá einum. Þar mun doktorinn dugmikli eflaust kljást við einhvern fágætan en hræðilegan sjúkdóm – sem óskandi væri að Moggabloggið smitaðist af.