Soul-bandið The Christians komu til Íslands fyrir u.þ.b. 15 árum síðan, á að giska. Það var á þeim árum þegar allar erlendar hljómsveitakomur vöktu mikla athygli og lög sveitanna voru spiluð von úr viti í útvarpinu.
The Christians áttu einn stóran hittara hér heima – Words. Gott ef lagið var ekki síðar notað í auglýsingaherferð einhvers íslensks stórfyrirtækis, sem eflaust hefur hlunnfarið listamennina.
Um daginn sló ég The Christians upp í Wikipediunni og komst þá að því að þeir Christians-félagar eru engin sérstök guðslömb. Þrír þeirra voru bræður – með ættarnafnið Christian og sá fjórði hét hvorki meira né minna en Henry Christian Priestman.
Athyglisvert er að Words er ekki nefnt í Wikipediu-færslunni og ef leitað er í YouTube, má þar finna ýmis önnur myndbönd með sveitinni en aðeins eitt – og það nokkuð sérkennilegt myndband – með Words. Voru vinsældir þessa lags e.t.v. bundnar við Ísland?
Megi Moggablogginu verða orða vant.