Um sexleytið í kvöld átti ég leið framhjá rússneska sendiráðinu. Þar var flaggað – og það ekki í hálfa stöng. Þetta er nokkuð óvænt í ljósi þess að Jeltsín dó í dag. Hér koma nokkrar skýringar til greina:
i) Að 23. apríl sé þjóðhátíðardagur einhvers ríkis eða rússneskur hátíðisdagur og þá sé flaggað óháð öllum andlátsfregnum.
ii) Að Rússar hafi aðrar siðvenjur varðandi meðferð fána í tengslum við dauða þjóðarleiðtoga – flaggi t.d. í fulla stöng í virðingarskyni.
eða
iii) Að þeir hafi verið svona einlæglega glaðir yfir að karluglan væri loksins dauð.
Þriðji kosturinn finnst mér nú ólíklegastur þegar diplómatar eiga í hlut…
Megi landsmenn draga fánann að húni þegar Moggabloggið loksins drepst!