Pissað í laugina

Fór á pöbbarölt í­ gær ásamt Stebba Hagalí­n. Stoppuðum m.a. á tveimur börum sem ég hafði aldrei komið á fyrr. Annar var sportbarinn sem er í­ sama húsi og Vegas (er það við Vitastí­g?) Það virðist notalegur staður til að horfa á fótbolta og þjónustan hlýleg. Undir lokin litum við svo inn á Boston – eða e-ð álí­ka, sem er í­ nánast ómerktu húsi við hliðina á Dillon.

Á barnum þar á milli heyrðum við á tal Íslendinganna á næsta borði við erlenda afgreiðslustúlku, sem gekk einkum út á að lofsyngja í­slensku sundlaugarnar. Eftir langa mærðarrullu um þetta yndislega sundlaugavatn urðum við að blanda okkur í­ umræðurnar. Við sögðumst furða okkur á þessum sið að pissa í­ vatnið. Íslendingarnir spurðu okkur hvað í­ ósköpunum við værum að meina og hvaðan við kæmum? Við sögðumst vera austurrí­skir túristar í­ tveggja vikna frí­i. (How do you like Iceland? – Very nice. – And the girls? – Well, they are good in football aren´t they? The men are handsome though.)

Aftur barst talið að sundlaugunum. Íslendingarnir þrættu fyrir að nokkur maður pissaði í­ laugarnar, en við staðhæfðum að börn og margir eldri borgarar gerðu það – einkum í­ heitu pottana. Sögðum að það sæist á sælusvipnum á þessum hópum.

Þau í­slensku létu sig samt ekki. Á Íslandi pissar ekki nokkur maður í­ laugarnar – eða heitu pottana. Það getur verið að fólk geri það í­ Austurrí­ki, en ekki á Íslandi. Ónei.

Á sagnfræðinni í­ Háskólanum var okkur kennt allt um kenningar Renans um þjóðerni -að það að vera þjóð snerist að miklu leyti um sameiginlegar minningar, en ekki sí­ður um sameiginlega gleymsku. Getur verið að kjarni í­slensks þjóðernis felist í­ að þræta fyrir það við útlendinga að börn og gamalmenni pissi í­ heita pottinum í­ sundlauginni?

Megi krakkarnir og gamlingjarnir pissa næst á Moggabloggið.