Skarpir lesendur þessarar síðu kunna að hafa tekið eftir því að ég er hættur að hnýta í Moggabloggið í lok hverrar færslu. ístæðan er einföld. Moggabloggið hefur runnið svo rækilega á trýnið að það er lítil ástæða til að hafa af því sérstakar áhyggjur meir.
Anna Kristjánsdóttir hefur þó varpað fram ágætri samsæriskenningu á síðunni sinni. Samkvæmt henni hef ég tekið upp kafbátahernað gegn Moggablogginu til að rýja það endanlega öllu trausti – í því skyni hafi ég búið til ofurbloggarann Bol Bolsson, sem mun vera vinsælasti Moggabloggarinn um þessar mundir eða „Styrmir Gunnarsson netheima“.
Þetta er áhugaverð kenning, en getur varla verið á rökum reist. Eða hvað…?