Eins og glöggir lesendur þessarar síðu vita, er ég aðdáandi Alex Salmond, leiðtoga SNP í Skotlandi og núverandi forsætisráðherra Skotlands. Ég tel Salmond vera einhvern öflugasta ráðamann í Evrópuríki í dag – ef ekki þann öflugasta.
Samt fer maður nánast hjá sér við að lesa aðra eins lofrullu og sjá má í leiðara The Independent um Salmond í dag. Mæli með þessari lesningu og fleiri tengdum greinum um skosku stjórnina fyrir áhugamenn um bresk stjórnmál. Það er nefnilega margt til í því sem ritstjóri Independent skrifar að sterk staða SNP er í dag helsti tálminn í vegi þess að Gordon Brown efni strax til þingkosninga. SNP hefur ekki minna að segja en íhaldsflokkurinn í reiknidæmi breska forsætisráðherrans.