Hættur að blogga

íkvörðunin hefur verið tekin. Ég er hættur að blogga. Lesendur sem lagt hafa í­ vana sinn að heimsækja bloggsí­ðuna Um tilgangsleysi allra hluta geta hætt því­.

Ekki svo að skilja að ég sé hættur að skrifa hugleiðingar á netið, sem verða aðgengilegar á þessari vefslóð. Neinei, ég ætla bara að ganga á hönd hinni nýju hátækniorðræðu.

Krafa samtí­mans er hátækni. Allt verður einhvern veginn betra, flottara og dýrara ef það heitir hátækni-e-ð. Það er ekkert töff að byggja spí­tala, en allir vilja hátæknisjúkrahús. Fyrirtækið sem ætlar að byggja olí­uhreinsunarstöð fyrir vestan kallar sig Íslenskan hátækniðnað eða e-ð álí­ka. Og þegar Yahoo, Microsoft og Google biðja um að fá að kaupa rafmagn til að reka geymslur sem er í­ raun bara stórir kæliklefar – þá heitir húsvarðadjobbið „hátæknistörf við rekstur netþjónabúa“.

Ég vil taka þátt í­ þessu. Hér með hefur því­ verið ákveðið að Um tilgangsleysi allra hluta sé ekki lengur bloggsí­ða heldur „hátæknihugveita“ og ég því­ ekki lengur bloggari heldur „hátæknihugveitir“.

Spurning um að breyta skráningunni í­ Sí­maskránni lí­ka?