Tímaritavefur Landsbókasafnsins er æði – en jafnframt eitt best varðveitta leyndarmálið í netheimum. Starfsmenn bókasafnsins keppast við að skanna inn blöð og tímarit, sem hægt er að leita í með öflugri orðaleitarvél. Gallinn er hins vegar að lítið sem ekkert er gert í að kynna nýjungarnar. Þannig uppgötvaði ég fyrir tilviljun um daginn að byrjað væri að bjóða upp á orðaleit í fjölda gamalla blaða á borð við ísafold og Lögréttu.
Núna er Tímaritavefurinn farinn að hlaða inn Fréttablaðinu og má því lesa og leita í fyrsta og öðrum árgangi þess. Rifjast þá upp hvað blaðið var fáránlega illa skrifað á köflum og hvað umbrotið gat verið allt í steik.
Sá sem skoðar blöðin frá fyrstu viku Fréttablaðsins, í apríl 2001, hnýtur um sérkennilegan blöðung frá miðvikudeginum 25. apríl. Blaðið var sagt vera 88. tbl., 88. árgangs. Forsíðufréttin bar yfirskriftina „Þjóðin tryllist af gleði“ og lýsir fádæma undirtektum þjóðarinnar við útgáfu Fréttablaðsins. Fréttir blaðsins eru annars hálfgert rugl, þar sem myndir, fyrirsagnir og meginmál tengist lítið eða ekkert.
Hvernig stendur á þessu 88.tbl. Fréttablaðsins? Fór þetta blað í almenna dreifingu sem eitthvert grín – eða er hér um að ræða æfingu umbrotsmanns sem einhverra hluta vegna hefur nú ratað inn á Tímaritavefinn? Ef seinni kosturinn er réttur, þá verður áhugavert að sjá hversu lengi þeir bókasafnsmenn verða að kippa blaðinu af vefnum. Spurning um að prenta út eintak til vonar og vara?