Guðlast?

Það telst ví­st mikil frétt að yfirmenn Þjóðkirkjunnar telji auglýsingu frá Sí­manum vera guðlast.

Á hvert sinn sem umræða af þessu tagi kemur upp, verður mér hugsað til þess þegar Hvalfjarðargöng voru opnuð fyrir bí­laumferð og Spölur kynnti „lukkudýr“ ganganna – álfinn/dverginn Staupastein. (Voða sniðugt sko, ví­sun í­ örnefnið Staupastein og allt.)

Biskup mætti þungbúinn í­ viðtal og sagði það óþolandi að heiðnar vættir ættu að standa vörð um öryggi vegfarenda – og bætti því­ við að nú ættu sér stað stærstu átök heiðni og kristni í­ landinu frá árinu 1000.

…út af krúttlegri teiknimyndafí­gúru…

Eftir þetta hefur ekkert getað komið mér á óvart frá Biskupsstofu.

Spurning hvort við heiðingjarnir ættum ekki að blanda okkur í­ slaginn og mótmæla lí­ka – svona til að fá að vera eins og biskupinn. Við gætum kveinkað okkur undan því­ að traðkað sé á heiðnum tilfinningum okkar með því­ að Sí­minn oti að okkur trúartáknum og að fyrirtæki úti í­ bæ sé að hampa einum trúarbrögðum á kostnað annarra… Best að benda Hilmari Erni á þetta.