Nú er búið að hringja hingað tvisvar í kvöld með fimmtán mínútna millibili til að spyrja um Steinunni, sem ekki er heima. Þarna er annað hvort um að ræða einhverja símsölu eða skoðanakönnun – í það minnsta er fyrirtækið Miðlun skráð fyrir símanúmerinu sem hringt var úr.
Svona hringingar fara ekkert í taugarnar á mér, ef hringt er á skikkanlegum tímum sólarhringsins og ekki í síbylju – að öðrum kosti væri mér líka í lófa lagið að setja mig á bann-hringilistann í Símaskránni.
Það fer hins vegar í taugarnar á mér að þessir Miðlunar-starfsmenn skuli ekki kynna sig – þeir biðja bara um manneskjuna sem þeir vilja ná í og segjast svo muni hringja aftur seinna. Það er dónaskapur að kynna sig ekki í síma þegar maður hringir í ókunnugt fólk. Og ennþá meiri dónaskapur að ráða fólk í vinnu til að standa fyrir kerfisbundnum dónaskap.
Miðlun eru skúnkar dagsins.