Ég skil ekki fólk sem kann ekki að slökkva á gemsunum sínum – eða slökkva á hljóðinu.
Ég skil enn síður í fólki sem fellur undir ofangreinda flokkinn – en ákveður samt að mæta með símann sinn í útfarir.
Á kirkjunni í dag hringdi sami síminn FIMM SINNUM – og í ÞRJÚ fyrstu skiptin var eigandinn jafnlengi að krafsa hann upp úr vasanum eða veskinu.
Er hægt að gera kröfu um að fólk hafi próf í meðferð símtækja á sama hátt og t.d. bílpróf?