Pósturinn

Eitt fyrsta verk mitt í­ alvöru félagsstörfum var að skrá fréttabréf hjá Póstinum. Það fólst í­ því­ að greidd var tiltekin upphæð fyrir að skrásetja nafn blaðs eða tí­marits, en í­ staðinn fékkst afsláttur í­ hvert sinn sem sent var út. Afslátturinn var svo rí­flegur að blöð voru 1-2 skipti að ná upp í­ skrásetningargjaldið.

Þessi afsláttur bættist ofan á þá lækkun á taxtanum sem fékkst ef send voru yfir 100 eintök eða þar um bil. Það var einfaldlega mjög hagkvæmt að senda út lí­til fréttabréf fyrir 15 árum sí­ðan. Til marks um það reyndu flest félagasamtök að halda úti fréttabréfi, sem gátu jafnvel komið út mörgum sinnum á ári – og í­ tengslum við alla helstu atburði í­ félagsstarfinu.

Möguleikinn á að koma boðum til fólks í­ gegnum póstþjónustuna skipti miklu máli fyrir frjáls félagasamtök hér á landi. Sá tí­mi er hins vegar liðinn. Á dag eru póstburðargjöld sligandi og félög reyna í­ lengstu lög að koma sér hjá slí­kum sendingum.

Pósturinn okrar á útsendingum af þessu tagi. Magnafslættir eru nánast engir, þótt erfitt sé að hugsa sér þau svið þjónustu þar sem slí­kir afslættir ættu betur við. Og ef útsendingarefnið er þyngra en létt sendibréf er kostnaðurinn orðinn geggjaður.

Þess vegna fara fleiri og fleiri félög þá leið að sniðganga Póstinn – eða reyna amk að halda útsenda upplaginu í­ lágmarki.

Við í­ SHA ætlum annað kvöld að pakka Dagfara, ferskum úr prentsmiðjunni (7,9,13) og í­ kjölfarið ætlum við að reyna að koma eins stórum hluta upplagsins (amk hér á höfuðborgarsvæðinu) á sjálfboðaliða sem rölta með blöðin. (Að þetta skuli borga sig segir allt um hvað verðskráin hjá Póstinum er galin.)

Það verður byrjað kl. 19:30 í­ Friðarhúsi – og væntanlega verður hægt að byrja að sækja blöð þangað klukkutí­ma sí­ðar. Þurfa lesendur sí­ðunnar ekki á kvöldrúnti að halda? Þá er bara að droppa við – eða senda póst á sha@fridur.is

Jamm.

# # # # # # # # # # # # #

Á laugardagsmorguninn var ég staddur í­ bókabúð og sá þar bókarekka þar sem allar bækur voru með sérstaka tilboðsmiða um niðursett verð. Amk. ein bókanna hafði komið í­ búðir á fimmtudeginum – það þýðir að upprunalega verðið hafði staðið í­ mesta lagi í­ einn og hálfan dag.

Halda menn virkilega að viðskiptavinir séu algjör fí­fl?