Steinunn Rögnvaldsdóttir kallar eftir uppástungum að nýjum þjóðsöng.
Hér er rétt að fara í þarfagreiningu. Til hvers þurfum við þjóðsöng? Jú, til að peppa upp stemninguna fyrir landsleiki í íþróttum. Eru einhver önnur not fyrir þjóðsöng? Jú – ef við myndum vinna gullverðlaun á Ólympíuleikum, þá þarf að eiga þjóðsöng… en það er hvort sem er ekkert að fara að gerast.
Með öðrum orðum: eini praktíski tilgangur þjóðsöngsins er að hrella andstæðinga í fóbolta og handbolta – og koma okkar leikmönnum í stuð.
Á ljósi þessa ætla ég að mæla með Partýbæ með Ham.