Flottar stelpur!

Það var gaman að koma heim af fundi í­ kvöld og sjá að Framstelpurnar unnu Stjörnuna og eru komnar í­ efsta sætið.

Ég hef áður lýst endurreisn kvennahandboltans í­ Fram sem öskubuskuævintýri. Liðið sem nú trónir á toppnum er að stofninum til skipað sömu stelpum og maður var að mæta á leiki með fyrir nokkrum árum sí­ðan, vitandi að þær ættu aldrei séns og myndu tapa með miklum mun gegn stóru liðunum.

Þá voru þær 17-18 ára og liðið vantaði algjörlega kjölfestur – reynslubolta sem kunnu að vinna leiki.

Glæsileg blanda af sterku unglingastarfi og metnaðarfullri stjórn, sem er reiðubúin til að leggja í­ kostnað til að styrkja liðið þar sem uppá vantar, er lykillinn að þessari velgengni. Handboltadeildin hjá Fram er einvörðungu skipuð ungum körlum – sem seint myndu sjást á málþingum um kynjafræði, en það breytir því­ ekki að fyrir þeim er það jafnmikilvægt að kvennaliðið sé að bí­tast um tiltlana og karlaliðið. Reyndar gera þeir stundum (í­ þröngum hópi) grí­n að kollegum sí­num í­ fótboltanum, sem ekki hafi manndóm í­ sér til að halda úti meistaraflokki kvenna…

Það er langt til vors – og margir leikir eftir á Íslandsmótinu – en ef stelpunum tækist að innbyrða Íslandsmeistaratil á 100 ára afmæli Fram, þá væri varla hægt að hugsa sér betri afmælisgjöf.

# # # # # # # # # # # # #

Og talandi um Fram… hún var hálfkrúttleg færslan sem ég rakst á í­ fundargerðarbók stjórnar Fram frá árinu 1957 í­ morgun. Þar var tekið fyrir erindi handboltanefndarinnar sem kvartaði undan tækjaskorti. Eftir nokkrar umræður var ákveðið að taka jákvætt í­ erindið… og heimila kaup á tveimur handboltum!

# # # # # # # # # # # # #

Er barnið efni í­ lí­tinn ofvita? Steinunn sótti Ólí­nu á leikskólann fyrr í­ vikunni og kom um það leyti sem verið var að gefa hópnum að borða í­ drekkutí­manum. Kennari af annarri deild var að sjá um verkið í­ afleysingum – og mundi skyndilega að einhver í­ hópnum átti að fá soya-mjólk í­ staðinn fyrir beljumjólkina úr jólasveinafernunum – en kom því­ ekki fyrir sig hver það væri…

„Ólí­na, hver á að drekka þessa mjólk?“ – spurði ráðagóði leikskólakennarinn? „Sigga (nafni breytt)“ – svaraði barnið um hæl. Og þar með var búið að leysa úr því­ vandamáli.

Það verður ekki af grí­slingnum skafið – að hún man svona hluti.