Lestur

Ég las eiginlega yfir mig í­ nóvember, þökk sé dómnefndarsetunni. Fyrir vikið hefur mér ekki gengið vel að hafa mig út í­ yndislestur – annan en þann er varðar sögu Fram.

Á þessu eru þó undantekningar. Ég pantaði mér Fjölmiðla-bók Ólafs Teits Guðnasonar af net-verslun Andrí­kis og hef verið að grí­pa í­ hana upp á sí­ðkastið. Nú les ég ekki Viðskiptablaðið nema endrum og sinnum og þess vegna er gaman að fá heils árs skammt – beint í­ æð ef svo má segja. Það er eftirsjá af þessum skrifum ÓTG.

# # # # # # # # # # # # #

Og úr því­ að ég er á annað borð kominn í­ þann gí­rinn að hrósa mönnum sem ég er annars ekki alltaf sammála – þá vil ég benda á pistil Guðmundar Andra Thorssonar í­ Fréttablaðinu í­ dag.  Skynsamlegar pælingar um mál sem flestir fjalla um af lí­tilli skynsemi.