Á kvöld spilaði ég fótbolta í agnarsmáum sal í Austurbæjarskóla. Mér taldist til að hann væri 18 sinnum 8 metrar. Með tveimur þriggja manna liðum minnti atgangurinn frekar á veggtennis en knattspyrnu.
Djöfull bölvaði skrokkurinn aukahangikjötssneiðunum meðan á þessum ósköpum stóð.