Snilld!

Það var frábært að horfa upp á Luton gera jafntefli við Liverpool í­ enska bikarnum í­ dag. Við vorum fjandakornið betri í­ leiknum og hefðum hæglega getað stolið sigrinum.

Úrslitin eru einhver þau mikilvægustu í­ sögu liðsins. Eftir á að hyggja hefðum við ekki haft ráð á að vinna – tekjurnar af seinni leiknum verða ótrúlega drjúgar í­ peningavandræðunum.

Brill var frábær í­ markinu. Currie og Talbot fóru sömuleiðis á kostum. Reynar voru allir leikmennirnir góðir í­ dag.

Nú er gaman að vera til.