Allir fótboltasögunördar vita að faðir knattspyrnunnar á Íslandi var James B. Ferguson – skoskur prentari sem starfaði hér árið 1895. Hann kenndi heimamönnum að sparka í bolta – og í kjölfarið var Fótboltafélag Reykjavíkur stofnað.
Hann var líka upphafsmaður fimleikaæfinga hér á landi.
Þetta vita allir góðir menn.
EN – af hverju hefur enginn gengið í að grafast fyrir um hvað varð um James B. Ferguson?
Nú er nafnið vissulega þesslegt að vera alltof algengt – en með netinu ætti að vera hægt að grafa upp fjári mikinn fróðleik – ef menn kunna að leita.
Hvað gerði hr. Ferguson áður og eftir að hann kom til Íslands?
Það væri gaman að vita.