Pawel Bartoszek er sá pistlahöfundur á vefritinu Deiglunni sem mér finnst skemmtilegast að lesa. Hann er nefnilega frumlegur, en almennt séð á Deiglan að glíma við það klassíska vandamál pólitískra vefrita að flestir pistlar þess eru leiðinlega fyrirsjáanlegir.
Á dag fjallar Deiglupenninn knái um endalok Múrsins.
Við lestur þessarar greinar, rifjaðist upp fyrir mér bráðfyndinn pistill sem Kolbeinn Proppé skrifaði einu sinni á Múrinn. Hvernig skyldi nú standa á þessum hugrenningatengslum?