Líkamsæfingar fyrir ungar stúlkur

Mogginn var með kúnstuga úttekt á kvennaí­þróttum 25. nóv. 1916:

Flest kvenfólk hefir ákaflega gaman af að koma á hestbak. Og betri og hollari hreyfing er ekki til fyrir ungar stúlkur. En fyrir giftar konur getur það verið mjög óholt.

Yfirleitt eiga stúlkur eigi að gefa sig að þeim lí­kamsæfingum sem ætlaðar eru fyrir karlmenn. Heilbrigð skynsemi mælir á móti því­ og heilsufræðin fordæmir það. Hinar eðlilegu æfingar á að taka fram yfir alt annað, en menn verða þó jafnframt að gæta hófs, því­ að >>of mikið<< er verra en of lí­tið.

# # # # # # # # # # # # #

Kevin Blackwell hefur sagt starfi sí­nu lausu sem framkvæmdastjóri Luton. Hann ætlar samt að sjá um liðið næsta mánuðinn.

Mikið er ég feginn að geta bráðum farið að hugsa um handboltalandsliðið í­ staðinn fyrir þessa skelfingu alla…