20/20

Luton fékk á baukinn á Anfield í­ kvöld – en stuðningsmönnunum er sama. Við grátum alla leið í­ bankann.

Jafnvel þótt við hefðum unnið óvæntan sigur og slegið Liverpool út úr keppninni, þá hefðu það verið smámunir miðað við aðalfrétt dagsins: fjárhaldsmaður félagsins í­ greiðslustöðvuninni hefur fallist á tilboð 2020-hópsins sem boðið hefur í­ félagið.

Stuðningsmenn liðsins voru einhuga að baki tilboðs 2020-hópsins, sem inniheldur gamla stuðningsmenn og jafnvel leikmenn – t.d. er Steve gamli Foster (maðurinn með ennisbandið) í­ hópnum.

Þessi eigendahópur lofar ekki gulli og grænum skógum. Þarna er enginn skrilljónamæringur sem heitir úrvalsdeildarsæti innan fárra ára. Við munum halda áfram að vera klúbbur í­ kröggum sem þarf í­ sí­fellu að selja bestu mennina.  Á hinn bóginn virðast þessir væntanlegu eigendur ekki vera braskarar sem lí­ta á félagið sem lykil að skyndigróða – t.d. í­ tengslum við lóðabrask.

Svo virðist sem það ætli að takast að forða Luton Town frá gjaldþroti. Á ljósi þeirra fregna væri mér sama þótt Liverpool hefði skorað tuttugu mörk í­ kvöld.