Þegar ég var á fyrsta og öðru ári í gaggó, reyndi ég að máta mig í listaspíruhlutverkinu. Eitthvað bögglaðist maður við að skrifa af ljóðum og lesa framúrstefnulegar ljóðabækur eftir skuggalega náunga, sem voru súrrealistar og ortu blóði drifin kvæði.
Ég lét nokkrum sinnum draga mig á kvikmyndasýningar í Mír. – Og einu sinni vann ég peningaverðlaun við fjórða mann fyrir myndverk/gjörning á einhverri menningarhátíð unga fólksins. Verkið reyndi helst á þeffæri áhorfenda.
Á síðasta ári í Hagaskólanum datt gjörsamlega botninn úr þessum listamannsgrillum mínum. Ég lagði allt þetta dund á hilluna og breytti lestrarvenjum mínum allverulega. Það ár var ég reyndar farinn að umgangast talsvert strákaklíku sem var árinu yngri og innihélt Palla Hilmars, Úlf Eldjárn, Ragga Kjartans, Þorlák Einarsson o.fl. – Þeir voru á bólakafi í listamannagírnum, en mér tókst að leiða það hjá mér og talaði bara við þá um pólitík í staðinn.
Það er líklega vegna þess hvað ég losnaði snemma við listamannabakteríuna að mér er fyrirmunað að skilja boðskapinn hjá anarkistahópnum sem málaði með svörtu yfir listasýningu í Þjóðarbókhlöðunni og sem sagt var frá í tíufréttum í kvöld
Verkið sem um ræðir (og er víst hluti af MA-verkefni) hljómaði reyndar ansi mikið eins og samkvæmisleikur á einhverju hópeflisnámskeiðinu – þar sem gestir og gangandi áttu að skrifa eitthvað frá eigin brjósti um brottför hersins. Þetta heitir víst að koma af stað „hugflæði“…
Nema hvað – að mati anarkistanna er fólk upp til hópa fáráðar sem skilja ekki raunverulegar ástæður stríðs og þess vegna er þarf að hertaka listaverkið og mála það svart til að sýna fram á hræsnins. Það var einhvern veginn svona…
Sanleiksflytjendurnir með koltjöruna birta svo mynd af sér við málningarstörfin – en hylja andlitin.
Ég á óskaplega bágt með að sjá snilldina í þessu. Hver er broddurinn? Hvað var það við útskriftarverkefni fjölmiðlanema í Háskólanum sem kallaði á þessi viðbrögð? Hvert er rökrétt næsta skref á eftir þessu? Að mála næsta strætóskýli svart til að afhjúpa hræsni og blindu einkabílismans? Hvað veit ég…
Æi, þetta er bara eitthvað svo aumt.
(Viðbót kl. 8:55 – málningarteymið mun víst hafa ákveðið að koma fram undir nafni og hefur birt ljósmyndirnar aftur án þess að fela andlitin. Sé þó ekki að það breyti afstöðu minni til málsins í neinum meginatriðum.)