Strategía

Formaður félags kráareigenda segir félagið fagna því­ að reykherberginu í­ Alþingishúsinu verði lokað. Samt er félagið hans að berjast fyrir því­ að fá að halda úti reykherbergjum. – Ef það væri einhver glóra í­ veitingamönnum ættu þeir væntanlega að harma ákvörðunina og votta reykingarfólki í­ röðum þingmanna og starfsfólks þingsins samúð sí­na.

Félag kráareigenda var sem sagt að missa sitt helsta áróðursvopn og forysta félagsins fagnar?  Eitthvað þurfa menn að endurskoða strategí­una á þeim bænum.