Hér á Minjasafninu er fjöldinn allur af pólskum smiðum og verkamönnum að störfum. Rétt sem stendur eru þeir að koma fyrir loftklæðningu.
Þetta eru hörkunaglar og hinir vinalegustu – þótt þeir tali litla ensku og ég litla þýsku.
En þeir hafa einn galla og hann ekki lítinn…
…þeir láta útvarpið drynja meðan þeir eru að vinna…
…sem væri allt í lagi…
…ef það væri ekki alltaf stillt á Létt-Bylgjuna!