Flest internetævintýri Moggans enda með skelfingu. Á því eru þó nokkrar undantekningar. Þeirra veigamest er fasteignavefur mbl. Allir sem eru að leita að fasteign fara þangað – og hvergi annað.
Nú er ég ekki í íbúðaleit, en fer þó alltaf öðru hvoru inn á vefinn og prófa að slá inn leitarorðinu „Mánagata“ og tékka jafnvel líka á Vífilsgötunni og Karlagötunni. Þetta geri ég sumpart af forvitni – til að sjá hvort einhver hús í hverfinu séu að skipta um eigendur og sumpart til að fylgjast með því hvernig verðlagningin á íbúðum eins og okkar tekur breytingum.
Nú sé ég t.d. að verið er að selja kjallaraíbúðina í næsta húsi. Hún er 54 fm og kostar 15,5 milljónir.
Með þessari leitaraðferð koma vitaskuld upp allar Mánagötur á landinu. Götur með þessu nafni er að finna í Norðurmýrinni, í Grindavík, á ísafirði, í Reykjanesbæ, á Hvammstanga og á Reyðarfirði.
Yfirleitt hafa 2-3 íbúðir í götunni minni verið á söluskrá – en er bara ein núna. Að þessu sinni er ekkert auglýst í Grindavík eða í Reykjanesbæ.
Það er hins vegar nokkuð sláandi að sjá heilar sex fasteignir við Mánagötu á Reyðarfirði á söluskrá. Á mesta þenslutímanum, meðan á álversframkvæmdunum stóð, voru kannski eitt til tvö hús þarna á sölu – og fermetraverðið var svipað og á Akureyri. Núna hefur verðið hrapað.
Kannski er þetta bara tilviljun. Mögulega er Mánagatan frábrugðin öðrum götum á Reyðarfirði, þar sem slegist sé um eignir og verðið enn í toppi. En ég leyfi mér samt að efast um það…