Viðskiptahugmyndin

Besta viðskiptahugmynd föstudagskvöldsins gengur út á að stofna leðuriðju sem rekin væri á sömu forsendum og eggjabú sem gera út á „hamingjusamar hænur“ sem spóka sig frjálsar utandyra.

„Mannúðlega leðuriðjan“ myndi gera út á framleiðslu á jökkum og skóm úr skinni sjálfdauðra búgripa sem lifað hefðu löngu og innihaldsrí­ku lí­fi. Það mætti jafnvel taka auglýsingamyndir af kúnum liggja banaleguna á lí­knardeildum dýraspí­talans, umkringdar kálfum sí­num og kálfakálfum (er það orð ekki annars til?)

Svo yrði þess vitaskuld gætt að beljurnar yrðu flegnar með reisn og af fullri virðingu fyrir lí­kinu.

Það hlýtur að vera markaður fyrir þetta! Trúi bara ekki öðru.