Fyrir þessa helgi sendi ég Steinunni og grísinn austur á land til að kjá framan í tengdapabba og til að ég kæmi einhverju í verk.
Ég er fyrir vikið búið að skrifa um handbolta á níunda og tíunda áratugnum þar til að harpixið þrýstist út um eyrun á mér.
Ekkert sniðugt? Ekkert hnyttið fyrir fasta lesendur þessarar síðu? Nei – því miður, þið getið snýtt ykkur á innhverfum nærbuxunum – eins og segir í ótilteknu bókmenntaverki…