Það er athyglisvert að sjá Steingrím Joð byrja að feta sig áfram á Youtube. Reyndar er ég alveg hissa að enginn annar íslenskur stjórnmálamaður hafi byrjað á þessu löngu fyrr.
Þetta fyrsta innslag lofar góðu – þótt auðvitað eigi þetta eftir að slípast til í framtíðinni, geri ég ráð fyrir. Ég myndi t.d. mæla með örlítið styttri bútum og brjóta þá jafnvel upp með því að hafa annars vegar ræðustubb en hins vegar einhvern staðreyndamola, smástatistík eða annað slíkt.