Undur tækninnar

Nú á ég einhvers staðar í­ fórum mí­num skjal frá Edinborgarháskóla þess efnis að ég sé meistari í­ ví­sinda- og tæknifræðum.

Það breytir því­ ekki að ég get ekki útskýrt eina af helstu ráðgátum nútí­ma tæknikerfa: hvernig stendur á því­ að tæki sem var bilað, hættir að vera bilað um leið og maður er búinn að kalla til viðgerðarmann með þeim afleiðingum að maður lí­tur út eins og hálfviti.

Kannski maður þurfi að klára doktorinn til að átta sig á þessu?