Síðustu vikur og mánuði er búið að drekkja manni í fréttum af bandarískri pólitík og rekja fréttir af framboðum forsetaefna flokkanna og reynt að analýsera niðrí drep allar fregnir af kosningabaráttunni.
Samt virðist þessi kosningabarátta öll engu máli skipta. Úrslitin ráðast á demógrafíu. Sömu þjófélagshópar og kusu Hillary Clinton í fyrstu forkosningunum kjósa hana núna – sömu þjóðfélagshópar og kusu Barrack Obama fyrir nokkrum mánuðum gera það í dag. Úrslit hvers ríkis standa og falla með lýðfræðinni. Það er eins og kosningabaráttan hafi aldrei átt sér stað. Það er magnað!
Ég held að meira að segja enska úrvalsdeildin sé meira spennandi en bandarískar forsetakosningar.