Á dag birtist frétt á Vísi. Fyrirsögn hennar var þess efnis að kjaradeila slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli sé forsenda þess að NATO herþotur stundi æfingaflug hér á landi.
Á sjálfri fréttinni kemur svo fram að ef deilan leysist ekki muni öll flugumferð um Keflavíkurflugvöll leggjast af.
Ætli það séu ekki svona tíu manns á Íslandi sem finnst það meiri tíðindi að NATO-hringsólið sé í uppnámi en að millilandaflugið leggist af? Það skrítna er að þeir eru allir fjölmiðlamenn eða ráðherrar.
# # # # # # # # # # # #
Jæja, þá hefur verið tilkynnt að Luton hefji keppni í neðstu deild á næsta ári með fimmtán stig í mínus. Á fyrra fékk liðið tíu mínusstig fyrir að lenda í greiðslustöðvun. Þessi fimmtán eru fyrir að fara úr greiðslustöðvun…