Hef aðeins verið að grúska í sögu ylræktar síðustu daga, í tengslum við verkefni í vinnunni. Orkuveitan er að fara að setja fræðsluskilti um sögu hitaveitunnar frá Reykjum upp í Mosfellsbæ, þar sem einnig er fjallað um jarðvarmanýtingu á svæðinu. Meðal annars er komið inn á að fyrsta gróðurhús landsins hafi risið þar uppfrá 1923.
Nú er þetta strangt til tekið ekki hárnákvæm staðhæfing, því gróðurhúsið að Reykjum var jú bara það fyrsta sem hitað var með jarðvarma. Fyrir þann tíma voru reist gróðurhús sem ýmist voru köld eða hituð með því að brenna eldsneyti – en þar sem slík mannvirki samrýmast illa nútímahugmyndum um hvað felist í hugtakinu gróðurhús ætti þetta að sleppa.
Verra var að þegar ég fór að blaða á netinu, reyndist heimildum ekki bera saman um hvort Reykja-húsið væri frá 1923 eða 1924.
Misheppnaðar tilraunir til að fá úr þessu skorið leiddu mig inn á Tímaritavefinn, þar sem ég rakst á stórmerkilega grein í Morgunblaðinu frá 14. des. 1924. Þar er rætt almennt um jarðvarmanýtingu á Íslandi.
Þar er fyrst rætt um hversu góður jarðhitinn sé fyrir sundlaugar, húshitun og suðu. Nefnd eru dæmi um þessi not.
Svo segir: „En nýlunda er það, sem varðar Reykvíkinga sjerskatlega, hvernig farið er að nota laugahitann hjerna við þvottalaugarnar til ræktunar.“ Sagt er frá margvíslegum landbúnaði Carls Olsens kaupmanns í Laugardalnum, þar sem heitir Austurhlíð. ífram heldur blaðið: „Eins og mennvita, liggur vatnsæð úr sementpípum frá Laugunum og niður í Sundlaugarnar. Er leiðsla sú 4-500 m. löng. Liggur hún m.a. um land Olsens. Hefir hann látið byggja ræktunarhús, 6*15 álnir að stærð, á einum stað yfir vatnspípurnar og út úr þessum aðalskála, sem nýtur ekki laugahitans ennþá, hefir hann gert afhýsi eitt lítið, um 2 1/2 alin á breidd og 4 1/2 alin á lengd. Á afhýsinu hefir verið tekið til hitunar ofan af laugavatnspípunum. Nægir það eitt til þess að hita loftið í afhýsinu að venjulegu hitastigi vermihúsa, í rúml. 20 gráður á Celsíus.“
Á húsinu lét Olsen rækta blómplöntur, s.s. túlipana og sprungu þeir fyrstu út 29. nóvember. Boðuð var vetrarræktun á hyacinthum, páska- og hvítasunnuliljum. Framtíðarmúsíkin var svo sögð ræktun á tómötum, agúrkum – og jafnvel jarðarberjum, melónum og vínberjum.
Athygli vekur að í neðanmálsgrein er sagt frá tilraunum með gróðurhús að Reykjum: „Á Reykjum í Mosfellssveit, hjá Bjarna ísgeirssyni, er nýreist gróðurhús með laugahita. Danskur maður Boeskov að nafni, er verið hefir hjer á landi í nokkur ár, hefir umsjón með ræktuninni þar. Mánari fregnir af því fyrirtæki hefir Mbl. ekki aflað sér ennþá.“
Verður lokasetningin að teljast vísbending um að gróðurhúsið að Reykjum sé frá 1924 en ekki 1923 – þótt um það verði ekki fullyrt með vissu.