Hvert var fyrsta liðið sem ísgeir Elíasson þjálfaði í meistaraflokki? – Klassísk brelluspurning. Ansi margir fótboltanirðir myndu líklega svara: Þróttur, en rétta svarið er Víkingur Ólafsvík (sumarið 1975).
Eða það hélt ég að minnsta kosti…
Á 100 ára afmælisriti íR er hins vegar sagt frá fyrsta meistaraflokksliði félagsins eftir endurreisn knattspyrnudeildarinnar – sem keppti í 3ju deild sumarið 1974. Á bókinni er staðhæft að ísgeir hafi þjálfað liðið – og hann meira að segja sagður hafa leikið með því.
Nú er rétt að ísgeir starfaði við þjálfun hjá íR í yngri flokkum og var á þessum tíma einn slyngasti handknattleiksmaður félagsins. Hitt er jafnljóst að ekki hefur hann spilað með íR í þriðju deildinni þar sem hann lék með Fram í fyrstu deild þetta sumar – en hitt gæti verið rétt að hann hafi þjálfað liðið og spilað með í einhverjum æfingarleikjum.
Líklegra þykir mér raunar að Sigurbergur Sigsteinsson hafi þarna þjálfað íR-liðið.
En gaman væri að fá úr því skorið.