Lifi þenslan!

Framkvæmdum við garðinn á Mánagötu er lokið að heita má. Komin er þessi fí­na stétt og túnþökurnar eru að skjóta rótum.

Eftir að trén sem stóðu á lóðinni miðri voru fjarlægð kom í­ ljós að á besta stað í­ garðinum er hálfgerður suðupottur í­ sí­ðdegissólinni. Við eigum eftir að sitja þarna löngum stundum.

Næsta framkvæmd bí­ður haustsins. Þá er ætlunin að skipta rusl-/gestaherberginu upp í­ tvennt – barnaherbergi og bókageymslu. Okkur vantar bara góðan smið í­ djobbið.

Það er engin kreppa á Mánagötu – kraftvélar efnahagslí­fsins eru á fullri ferð!