Mínus þrjátíu

Enska deildin kvað upp úrskurð í­ dag. Þar sem Luton hefur ekki uppfyllt reglur deildarinnar um hvernig standa skuli að nauðarsamningum við lok greiðslustöðvunar, fær liðið tuttugu mí­nusstig fyrir komandi mót. Það bætist ofaná tí­u mí­nusstig frá knattspyrnusambandinu fyrir að hafa staðið rangt að gerð samninga við nokkra leikmenn, þótt jafnframt væri viðurkennt að enginn hafi auðgast vegna þessara brota.

Það þýðir þrjátí­u mí­nusstig.

Þrjátí­u mí­nusstig er fáránlega þung refsing. Oná þetta bætist að deildin gerir kröfu um að félagið greiði háar fjárhæðir í­ tengslum við nauðarsamningagerðina. Á praxí­s þýðir þessi úrskurður að lánadrottnar munu eftirleiðis hafa hag af því­ að setja knattspyrnuliðum stólinn fyrir dyrnar þegar kemur að nauðarsamningum, vitandi að  deildin mun setja aukapressu á félögin.

Deildin þvingaði félagið jafnframt til að afsala sér áfrýjunarrétti. Nú er ég ekki lögfræðingur – en í­ mí­num huga er það galið að undirdómstóll geti gert það hluta af dómsorði að sá dæmdi skuli afsala sér réttinum til áfrýjunar.

Menn eru í­ fullri alvöru að ræða möguleikann á að hafna þessari niðurstöðu og segja sig úr deildarkeppninni. Það er hvort sem er búið að dæma okkur hálfa leið niður. Hvernig á lið að geta haldið sér uppi og laðað til sí­n nýja leikmenn sem byrjar með þrjátí­u stig í­ mí­nus.

Enska deildin gerði meira í­ dag. Hún fór langt með að taka annað knattspyrnufélag af lí­fi. Rotherham FC, félag sem stofnað var 1884, fékk fimmtán stiga frádrátt – og þar sem verra er, rausnarlega sekt ef félagið getur ekki ábyrgst að það muni leika heimaleiki sí­na í­ heimabæ sí­num innan tí­ðar. Vandinn er að félagið á ekki eigin völl og stendur í­ stappi við mennina sem véluðu völlinn frá því­. Með dómnum er búið að slá öll vopn úr höndum félagsins í­ þessari baráttu.

Ég er ekki viss um að Rotherham lifi fram á haustið. Á næsta áratug mun enskur fótbolti missa fjöldamörg sögufræg knattspyrnulið ef ekki verður gripið í­ taumana.