Verkefni dagsins

Eitt af verkefnum dagsins er að lesa í­ gegnum mikinn doðrant sem allir starfsmenn Orkuveitunnar eru skyldugir til að kynna sér og kvitta undir staðfestingarblað þess efnis að þeir hafi lesið og skilið.

Doðranturinn fjallar um „Upplýsingaöryggi“ og má þar meðal annars lesa um hvernig haga skuli varðveislu upplýsinga og gagna. Hvað má og hvað má ekki. Það eru svona tveir mánuðir sí­ðan yfirmenn fyrirtækisins tilkynntu að allir skyldu láta upplýsingaöryggisvotta sig með þessum hætti.

Einhverra hluta vegna finnst mér þetta pí­nkulí­tið kaldhæðnislegt…