Góð saga eyðilögð

Á Ví­si má lesa um afdrif Stjörnustrí­ðsdvergsins – þ.e. dvergsins sem lék R2D2 í­ Stjörnustrí­ðsmyndunum.

Hann er ví­st í­ fullu fjöri.

Þetta eyðileggur hins vegar bráðskemmtilega sögu sem ég hef heyrt Daví­ð Þór Jónsson segja oftar en einu sinni – sem var eitthvað á þá leið að í­slenskur athafnamaður hafi haldið til Hollywood í­ leit að stjörnum til að troða upp á Hótel Íslandi, en eytt peningunum í­ brenniví­n og stelpur – og að lokum ekki átt eftir pening nema fyrir stjörnustrí­ðsdvergnum. Sú saga endaði á að ekið var yfir dverginn þveran á leiðinni á flugvöllinn.