Formúlan í Zimbabwe

Formúla-1 er sí­fellt í­ fréttunum, svo ég hugsaði með mér hversu dapurt lí­f áhugamanna um Formúlu-2 hlyti að vera. Prófaði að gúggla þeirri keppni og komst að því­ að fyrir nokkrum árum ákvað hún að breyta um nafn og heitir núna Formúla-3000 – það er grí­ðarlegur vöxtur…

En af hverju að stoppa í­ 3000? Af hverju ekki: Formúla-milljón? Eða Formúla-milljarður?

Hvað ætli formúlan í­ Zimbabwe heiti? Formúla-1.000.000.000.000.000.000.000.000.000.000? Minna má það nú varla vera…