Það eru innan við tveir sólarhringar í fyrsta leik keppnistímabilsins hjá Luton – en nú loks er ljóst að við náum að skrapa saman í lið. Fyrr í kvöld var tilkynnt um samninga við átta nýja leikmenn. Mick Harford er ekki öfundsverður að þurfa að starfa við þessar aðstæður.Þetta verður skrítin deild. Tvö lið falla. Við byrjum með 30 í mínus, Rotherham og Bournemouth með 17 hvort lið. Ætli þessi þrjú verði ekki með míní-deild á botninum? Það mega vera ansi döpur lið sem ekki ná að halda sér fjarri fallsvæðinu með 17 til 30 stiga forskot…Â