Helv… 21.öldin

21. öldin rí­ður yfir mig af fullum þunga.Um daginn dó sjónvarpið okkar (engin ending – þetta var ekki nema tí­u ára gamall gripur). Þá fórum við í­ sjónvarpstækjaverslun og uppgötvuðum okkur til mikillar skelfingar að það er ekki hægt að fá neitt annað en flatskjái í­ dag. Fyrir vikið eigum við núna flatskjá – og mér lí­ður eins og ég hafi svikið einhvern mikilvægan málstað.Og það sem verra er – ég kann ekkert á græjuna og legg ekki í­ að lesa þverhandarþykka bókina sem fylgdi með.Um svipað leyti dó vinnugemsinn minn eða hóf a.m.k. dauðastrí­ðið. Það er ekki í­ Â fyrsta sinn sem það gerist, enda hef ég haft þá vinnureglu hjá OR að biðja alltaf tæknideildina um elsta sí­mann sem til er – helst einhvern sem annar notandi í­ fyrirtækinu hefur skilað inn. Það sparar e-ð smotterí­ fyrir Orkuveituna, en hvati minn er annar. Með því­ að vera með gamla skransí­ma, þarf ég ekki að læra á ótal nýja fí­dusa og fer ekki á taugum þótt ég missi sí­mann í­ gólfið.En nú er ég sem sagt kominn með sí­ma með fullt af flóknum valkostum, myndavél og hvaðeina. Helví­tis 21.öldin virðist ætla að ná mér eftir allt saman…# # # # # # # # # # # # #Fyrsta liðið í­ Bretlandi er farið á taugum Bournemouth rak stjórann eftir fjórar umferðir og tvö stig. Þeir byrjuðu með 17 í­ mí­nus – svo við erum núna ekki nema átta stigum á eftir þeim.Það er allt í­ steik hjá Bournemouth-liðinu núna og nýji eigandinn er annað hvort einfeldningur eða þykist bara vera það. Yrði ekki hissa þótt liðið færi í­ þrot á tí­mabilinu.