Fyrir skömmu skrifaði minn gamli fótboltafélagi Grímur Atlason mikla bloggfærslu um fólkið sem væri á móti pasta og gerði það að verkum að hann þyrfti að borga geðveikislegar upphæðir fyrir osta, sveppi og góðar pylsur. Þá var hann bæjarstjóri í útgerðarplássinu Bolungarvík (eða nýhættur störfum).
Á morgun hlustaði ég á Grím Atlason – nú sem sveitarstjóra í landbúnaðarhéraðinu Dalabyggð – ræða um að það gæti svo sem verið að matvælaverð hefði mjakast eitthvað niður á við, en það væri á kostnað þess að nú æðu bara uppi einhverjar verslunarkeðjur sem seldu bara svínakjöt og hann gæti ekki einu sinni fengið rollukjöt í kjörbúðinni sinni. Jafnframt notaði hann tækifærið til að hrósa íslenska kúamjólkur-feta ostinum.
Ný sjónarmið á nýjum vinnustað?
…ekki þar fyrir að ég gat eiginlega verið sammála Grími í bæði skiptin.