Villta vinstrið

Vef-Þjóðviljinn skrifar um í­búðalánasjóðina bandarí­sku og björgunaraðgerðir stjórnvalda vestra. Á framhjáhlaupi er Barney Frank nefndur til sögunnar og hann sagður hluti af „villta vinstrinu“.

„Villta vinstrið“ er þekkt hugtak í­ stjórnmálum. Sjálfur þekki ég fjölda fólks sem fellur undir þessa skilgreiningu hér heima. En merkilegt finnst mér þó að lesa pólití­skt vefrit á Íslandi (þótt hægrisinnað sé) sem lí­tur á Barney Frank sem últra-vinstrimann.

Höfum í­ huga að Barney Frank hefur verið þingmaður á Bandarí­kjaþingi um langt árabil – sem eitt og sér setur því­ skorður hversu mikill vinstri róttæklingur hann getur verið.

Barney Frank þykir reyndar sér á báti í­ bandarí­skum stjórnmálum fyrir þá sök að hann er yfirlýstur hommi – og það sem meira er, heldur kynhneigð sinni á lofti og gantast með hana. Það gerir hann vitaskuld mjög sérstakan í­ pólití­kinni vestanhafs, en ætti varla að fara fyrir brjóstið á í­slenskum frjálshyggjumönnum.

Og jú – Barney Frank er hlynntur því­ að notkun á kannabis verði heimiluð í­ lækningaskyni… sem gerir hann að anarkista í­ sumum bandarí­skum kreðsum – en ætti heldur ekki að stuða í­slenska frjálshyggjumenn, sem daðra sjálfir við frjálslyndi í­ þessum efnum.

Ef rennt er yfir ferilskrá Barney Franks á Wikipediu má sjá hvaða málefni hans hafa vakið harðastar deilur:

* Hann hefur staðið gegn öllu því­ sem hann telur skerðingu á tjáningarfrelsi, þar á meðal banni við pólití­skum mótmælum í­ tengslum við útfarir hermanna.

* Hann styður fjárhættuspil á netinu.

* Hann hefur látið hafa eftir sér að of mikill ójöfnuður í­ samfélaginu sé skaðlegur.

Á sí­ðu þingmannsins má lesa um fleiri málefni sem maður getur svo sem skilið að tryggi honum engar vinsældir meðal hægrimanna í­ BNA.

* Hann er á móti því­ að allir þeir sem komi til BNA frá Kúbu fái sjálfkrafa bandarí­skan rí­kisborgararétt.* Hann er ekki á móti því­ að Kí­nverjar fái að vera með í­ WHO, alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

* Hann er á móti hvalveiðum Japana.

* Hann er á móti sí­mhlerunum án samþykkis dómara.

* Hann vill draga herinn út úr írak.

Gott og vel. Barney Frank virðist við lauslega athugun í­ hópi vinstrisinnaðari þingmanna í­ BNA – en nákvæmlega hvað í­ skoðunum hans veldur því­ að Vef-þjóðviljanafnleysingjarnir fella hann undir flokkinn „villta vinstrið“? – Það væri gaman að vita.Â